jump to navigation

Breytingar í hringrás lífsins febrúar 19, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
7 comments

Það er alveg magnað hvað maður stendur frammi fyrir miklum breytingum á næstunni. Maður eldist hraðar en maður getur talið og maður þarf að pæla í hlutum sem áður skiptu engu máli. Allt í einu þarf maður að fara að sýna miklu meiri ábyrgð. Hvað á t.d. að gera eftir stúdentinn? Fara og leika sér, gera eitthvað sem mann langar til að gera? Fara í háskólann og byrja það dæmi strax? Bíða með háskólann og leika sér eitthvað þangað til maður vill aftur í skólann? Flytja út í skóla eða vera hér heima? Flytja út á land í skóla eða vera heima?

Merkilegast finnst mér þó þær breytingar sem verða í lífi manns allt í kringum hann. Munstur þess fólk sem stendur næst þér breytist mikið á þessum fyrstu árum þrítugsaldursins. Margir af þínu nánustu vinum, systkinum eða ættingum eignast börn og skapa ný líf. Á sama tíma verður fólkið sem þú hélst að myndi alla tíð vera til staðar allt í einu ekki þar. Fólkið sem þú horfðir upp til þegar þú varst lítill með aðdáun eða væntumþykju. Líf þess endar skyndilega en á sama tíma verður til nýtt líf nálægt manni. Hringrás lífsins er svolítið magnað fyrirbæri þegar hugsað er út í allt það sem maður gengur í gegnum á leiðinni.

Nú er bara að taka þessum breytingum, sætta sig við orðinn hlut og halda áfram að horfa fram á veginn. Og ekki líta um öxl fyrr en við endalokin.

Mér finnst rigningin góð! febrúar 16, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Myndir.
3 comments

Rosalega er ég sáttur með rigninguna og hitann sem fylgir henni, ég fíla ekki snjóinn mjög vel, sérstaklega þegar hann ætlar að hanga svona lengi. Það er oft talað um að rigningin sé svo þunglyndisleg, fólk verður bara í verra skapi, en á veturna þá finnst mér eiginlega bara fínt að hafa rigningu frekar en snjó.

Þó það hafi hlýnað smávegis þá þýðir það ekki að maður geti bara hoppað út í peysu eða á bol. Ég varð því mjög ánægður þegar Helga Björg samþykkti að sitja fyrir hjá mér í útimyndatöku, á hlýrabol! Fórum meira að segja út í fjöru, svo ekki var nú skjólið mikið. Hún tók sannkallað ANTP á þetta og setti upp módelsvipinn, held henni hafi orðið á tímabili svo kalt að hún var hætt að finna fyrir því! Myndatakan var fyrir keppni á Flickrinu, í Garðarbæjar grúppunni. Þemað er “Svarthvítt Portrait” og ég sendi inn myndina sem þið sjáið hérna. Takk kærlega fyrir hjálpina Helga Björg!

Svo er fótboltinn búinn að vera á góðri siglingu hvað varðar æfingar og nú fara sífellt fleiri leikir að detta inn. Við spiluðum við Hött síðasta laugardag og unnum 3-2. Í dag spilum við svo við Grindavík kl. 16:45 í Kórnum í Kópavogi, það er mjöög gott að spila þar inni.

Læt þetta duga í bili, hérna er myndin sem ég ætla að nota í keppnina

Blóðgjöf febrúar 13, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
2 comments

Andri bróðir var að blogga um væntanlega blóðgjöf sína og hversu mikil áskorun Blóðþað væri fyrir sig að komast yfir það að geta ekki horft á blóð. Þá allt í einu mundi ég eftir því að í haust ætlaði ég að taka mig til og byrja að gefa blóð. Sökum undarlegs lokunartíma Blóðbankans náði ég því þó ekki og eiginlega gleymdi þessu öllu en kannski maður fari að drífa í þessu aftur núna? Það allavega ætti ekki að vera mikið mál, ég þoli nálir alveg þokkalega og ekki er ég hræddur við blóð.

Boris Jeltsin febrúar 11, 2008

Posted by rognvaldur in Youtube.
add a comment

Var að horfa á gríðarlega “spennandi” þátt um valdaskiptin á milli Boris Jeltsin og Vladimir Putin. Svona í alvöru reyndar, þá var hann fínn á að horfa. Sýndi spillinguna sem var í gangi. Allt í einu mundi ég svo eftir ofsalega fyndnu myndbandi á YouTube með skemmtilegustu mómentum Jeltsins. Þessi maður var snillingur!

Löggan, munkurinn og…hóran? febrúar 8, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
add a comment

Ég skrapp í Smáralindina á öskudaginn, í kringum hádegið. Ég sá litla krakka í búningum að syngja til að fá nammi, þó sumt verslunarfólkið kærði sig ekkert um sönginn heldur henti namminu beint í krakkana. Sumir krakkar voru í ofurhetjubúningum, ég sá eina löggu, munk og alls konar búninga. Svo sá ég nokkrar stelpur sem voru að detta inn á táningsaldurinn og þær voru ekki beint í þessum venjulegu búningum. Þær voru klæddar í búninga sem ég hefði haldið að Rauða Hverfið í Amsterdam væri að selja í markaðsskyni. Stutt pils, flegnir bolir, meikið framan í þeim var eins og hellt hefði verið úr málningafötum yfir þær og hárið var í alls konar litum.

Nú spyr ég, hvað vakir fyrir þessum stelpum og hvaðan fá þær hugmyndir að svona búningum? Er MTV-væðingin að orsaka þetta? Mér fannst þetta allavega frekar fyndið að sjá, eiginlega bara sorglegt.

Nemó var haldið í gær og var sýningin að venju mjög flott (þó lítið færi fyrir söguþræðinum). Vala, vinkona Ingibjargar systur, fór á kostum sem hinn uppáþrengjandi og ólétta Nóra, Dagurinn byrjaði ágætlega í morgunpartíi hjá Mariu sem ég og Sindri náðum loksins að mæta í eftir smá umferðarvesen. Eftir leikritið fóru nokkrir úr bekknum í keilu og upplifðu heimsins verstu afgreiðslu í sjoppunni þar. Mæli ekki með að panta sér hamborgara þar, maður gæti endað í að bíða í klukkutíma eftir matnum eins og ég í gær. Ég vann þó keiluna, báða leikina svo það var þó sárabót. Um kvöldið fór ég á æfingu og hlakkaði til að fara í bolta, en neinei, völlurinn var þakinn í snjó og við fengum bara að hlaupa í rúmar 40 mínútur. Ég dreif mig svo í mat/fyrirpartí hjá Boða þar sem nokkrir úr bekknum fóru á kostum, sumir urðu tilfinningasamir, sumir fóru illa út úr drykkjuleikjum á meðan aðrir læstu sig í tíma og ótíma inni á klósetti. Ballið á Broadway var svo ágætt, þó er alltaf ömurlegt að vera þarna inni í þessum fjölda sem safnast saman á þessi böll.

Quarashi febrúar 5, 2008

Posted by rognvaldur in Tónlist, Youtube.
add a comment

Var að enda við að setja Quarashi diskana mína inn í iTunes. Þessi gæjar eru algjörir snillingar og eru ennþá í uppáhaldi hjá mér. Mér fannst þeir bestir þegar Hössi var í bandinu, en þeir urðu ekki beint verri eftir að Tiny kom inn í þetta heldur öðruvísi en samt góðir. Baseline er bara eitt það besta lag sem ég veit um eftir íslenska hljómsveit.

Skelli inn tveimur uppáhalds myndböndunum mínum með þeim, þau er algjör snilld!

Heimskir bankaræningjar febrúar 4, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
add a comment

Ég var í klippingu í dag. Var að rifja það upp með Sævari, gæjanum sem klippir mig og á stofuna að hann hefði klippt mig í næstum 8 ár án undantekninga. Það var þó ekki það sem ég ætlaði að skrifa um.

Sævar segir allt í einu: “Heyrðu, það voru bara rosalæti hérna í morgun”. Ég varð hissa og hélt það hefði verið e-ð húllumhæ í stofunni um morguninn. Nei, aldeilis ekki. Hann spurði hvort ég hefði ekki heyrt um bankaránið á Lækjargötunni og ég sagðist nú bara ekki hafa heyrt neitt af því. Þá sagði hann mér að rétt eftir ránið hefðu tveir gæjar komið inn á stofuna og beðið um klippingu og rakstur á andlitsskegginu. Þeir fengu það sem þeir vildu og ekkert meira með það, spurðu jú að vísu hvar þeir kæmstu í húðhreinsun og brúnkukremsmeðferð. Sævar benti þeim á snyrtistofuna hinu megin á torginu og þangað hurfu þeir. Stuttu síðar birtist löggan og gæjarnir hlupu út af snyrtistofunni. Löggan sneri þá niður á torginu og handtók. Þá höfðu þetta semsagt verið tveir af fjórum bankaræningjunum frá því bara tveim klukkutímum áður. Pæliði í heimsku! Það er eitt að vera nógu heimskur til að fremja bankarán, annað að ná því og hafa svo ekki vit á að fara í felur!

Gæjarnir hafa sjálfsagt ætlað að skipta aðeins um útlit, en kommon! Það versta við þetta er að þeir tóku leigubíl inn í Garðabæinn!! Svo heyrði ég á æfingu áðan að þeir hefðu bara rölt inn í Byko í morgun og keypt eitt stykki exi, sjálfsagt í þokkalegri vímu. Svo fóru þeir í bankann og rændu. Hvað ætli hafi verið á dagskrá eftir hádegi hjá þeim? Fata makeover í Sautján?

Frétt á mbl.is um málið

Nýtt blogg febrúar 4, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Myndir, Youtube.
1 comment so far

Jæja þá ætla ég að fara að blogga eitthvað aftur, ekki viss um hversu lengi ég endist í þetta skiptið. Það eru komin tæp tvö ár frá síðasta bloggi og ég ætlaði upphaflega að endurvekja gömlu blogspot síðuna, en ég fann þetta kerfi og þvílíkur munur! WordPress til sigurs!

Ég er með myndirnar mínar á Flickr síðu, www.flickr.com/roggi og þar getið þið séð flestar myndirnar mínar. Er að skjóta fyrir Garðapóstinn/Kópavogspóstinn í hlutastarfi og ég verð að segja að þó að sum verkefnin séu ómerkileg og hálfleiðinleg þá er ég alveg sáttur við þetta. Skilar mér allavega reynslu og ekki slæmt að hafa þetta á CV þegar ég ætla að reyna að komast eitthvað áfram í þessum bransa.

Þessi myndi skilaði mér 1.sæti í keppni í Garðarbæjargrúppunni á Flickr, þemað var vísun í nafn á hljómsveit eða í lag og ég valdi “Chemical Brothers”. Sindri átti reyndar hugmyndina að þessu, við útfærðum þetta svo í sameiningu.

Enda þetta svo á þessum snillingi!