jump to navigation

Útskrift maí 21, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
1 comment so far

Nú fer að líða að útskriftinni hjá mér, en hún verður á laugardaginn. Að sjálfsögðu verður veisla þar sem helstu VIP ættingjum og vinum er boðið. Ég hef fengið nokkrar spurningar um hvað mig langi í útskriftargjöf. Mér finnst alltaf voðalega vandræðalegt að reyna að svara svona spurningum því ég veist sjaldnast við mig langar í. Allt það sem mig virkilega langar til að eignast og tel mig hafa mikil not fyrir kostar morð fjár og ekki séns að ég biðji um slíkt að gjöf. Ég er því eins og lokuð bók má segja í þessum efnum, en helst langar mig þó í eitthvað sem gæti nýst mér í ljósmynduninni.

Ég er að reyna að finna mér hjólaleiðir sem eru í kringum 15-20 km en það er bara hægara sagt en gert. Leiðin í kringum byggðina í Garðabæ er ekki nema einhverjir tæpir 11 kílómetrar og kortavefurinn á Garðabæjarvefnum er ekki virkur eins og er, líkt og allur vefur Garðabæjar. Spurning hvort maður skelli ekki bara GPS úrinu á hendina og skoði hversu langt maður er kominn hverju sinni, hugsa svo bara út leiðir sem myndu ná upp í a.m.k. 15 kílómetra á meðan ég hjóla!

Hversu mikill grínsnillingur er Jón Gnarr?

Kvikmyndaraddirnar mars 19, 2008

Posted by rognvaldur in Youtube.
add a comment

Lengst til hægri er gæjinn sem sér um 90% af Hollywood trailerum, gæjinn í miðjunni vinnur við þetta líka og svo er Pablo Francisco sem hefur gert óspart grín að hinum tveim.

Jimmy Kimmel mars 16, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
add a comment

Jimmy Kimmel er spallþjáttastjórnandi í USA og ég verð reyndar að byrja á því að viðurkenna að ég hef aldrei séð þátt með honum. Ég rakst hinsvegar á myndband sem er tekið úr þættinum og fannst það frekar fyndið og fann svo annað sem tengist því, einskonar svar við því fyrra. Forsaga málsins er sú að Kimmel hefur alltaf verið leiðinlegur við Matt Damon af einhverjum ástæðum og kveður áhorfendur alltaf með því að segja “bið Matt Damon afsökunar, en við höfðum því miður engann tíma fyrir hann”. Matt kom svo í þáttinn til hans, en um leið og hann settist sagði Kimmel að þátturinn væri búinn og enginn tími væri eftir. Matt snappaði á hann, veit ekki hvort það var í alvörunni, en hann lét Kimmel vel heyra það.

Matt talaði því við Söruh Silverman, kærustu Kimmel, og bað hana um hjálp við að hefna sín á Kimmel. Það endaði með þessu videó-i:

Þetta er svo stjörnum prýtt svar Kimmel:

“Fíllinn hvarf….hann bara fokking hvarf!” mars 7, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
add a comment

Jæja, þá kemur loks að því að maður setjist niður og skrifi eitthvað hérna. Síðustu vika hefur verið þokkaleg hvað varðar prógramm, maður hefur verið að skila hinum og þessum fyrirlestrum, mynda fyrir Verzlunarskólablaðið, mynda fyrir blöðin og síðan spila fótbolta villt og galið.

Mér hefur gengið nokkuð vel í boltanum að undanförnu, búinn að spila alla síðustu 5 leiki, þ.e. fulla leiki og bara staðið mig nokkuð vel að ég held. Það má reyndar alltaf gera betur og ég stefni á ekkert annað en að bæta minn leik. Það er líka miklu skemmtilegra þegar maður fær að spila nóg og af einhverri alvöru.

Ég myndaði ansi áhugaverðan einstakling fyrir Verslunarskólablaðið í síðustu viku og ég mun sýna ykkur þær myndir á Flickr-inu mínu og blogga jafnvel um viðtalið sem Steinar tók við hann meðan ég var þarna. Þessi aðili hafði ýmsar skemmtilegar pælingar og magnað sýn á lífið. Hann er af flestum talin e-ð skrýtinn í hausnum og kolruglaður, sem er svosem ekkert skrýtið miðað við það sem hann segir. Stundum fannst mér þó það sem hann sagði meika mjög mikið sens á meðan annað var gjörsamlega út úr kú.

Mig langar að enda þennan póst á myndbandi með Jeff Dunham, ég hef gjörsamlega ofkeyrt DVD diskana sem ég á með honum í tölvunni undanfarið. Hann er búktalari og einn sá færasti sem ég hef séð. Umfram allt þá er hann alveg rosalega fyndinn. Í þessu myndbandi talar persónan hans, Peanut, m.a. um það þegar það kom heill hópur af heyrnalausu fólki á sýningu hjá honum, með túlk! Glöggir átta sig á því að það er náttúrulega ekkert fyndið að fara að sjá búktalara ef þú heyrir ekkert. Það er eins og að fara með blint fólk á sjónhverfingasýningu og reyna að lýsa því sem gerist: “Fíllinn hvarf…..hann bara fokking hvarf!”

Þessi brandari byrjar rétt fyrir níundu mínútu í fyrra myndbandinu og heldur svo áfram í byrjuninni á því seinna. Mæli samt með því að þið horfið á allt saman, þetta er snilld!

Boris Jeltsin febrúar 11, 2008

Posted by rognvaldur in Youtube.
add a comment

Var að horfa á gríðarlega “spennandi” þátt um valdaskiptin á milli Boris Jeltsin og Vladimir Putin. Svona í alvöru reyndar, þá var hann fínn á að horfa. Sýndi spillinguna sem var í gangi. Allt í einu mundi ég svo eftir ofsalega fyndnu myndbandi á YouTube með skemmtilegustu mómentum Jeltsins. Þessi maður var snillingur!

Quarashi febrúar 5, 2008

Posted by rognvaldur in Tónlist, Youtube.
add a comment

Var að enda við að setja Quarashi diskana mína inn í iTunes. Þessi gæjar eru algjörir snillingar og eru ennþá í uppáhaldi hjá mér. Mér fannst þeir bestir þegar Hössi var í bandinu, en þeir urðu ekki beint verri eftir að Tiny kom inn í þetta heldur öðruvísi en samt góðir. Baseline er bara eitt það besta lag sem ég veit um eftir íslenska hljómsveit.

Skelli inn tveimur uppáhalds myndböndunum mínum með þeim, þau er algjör snilld!

Nýtt blogg febrúar 4, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Myndir, Youtube.
1 comment so far

Jæja þá ætla ég að fara að blogga eitthvað aftur, ekki viss um hversu lengi ég endist í þetta skiptið. Það eru komin tæp tvö ár frá síðasta bloggi og ég ætlaði upphaflega að endurvekja gömlu blogspot síðuna, en ég fann þetta kerfi og þvílíkur munur! WordPress til sigurs!

Ég er með myndirnar mínar á Flickr síðu, www.flickr.com/roggi og þar getið þið séð flestar myndirnar mínar. Er að skjóta fyrir Garðapóstinn/Kópavogspóstinn í hlutastarfi og ég verð að segja að þó að sum verkefnin séu ómerkileg og hálfleiðinleg þá er ég alveg sáttur við þetta. Skilar mér allavega reynslu og ekki slæmt að hafa þetta á CV þegar ég ætla að reyna að komast eitthvað áfram í þessum bransa.

Þessi myndi skilaði mér 1.sæti í keppni í Garðarbæjargrúppunni á Flickr, þemað var vísun í nafn á hljómsveit eða í lag og ég valdi “Chemical Brothers”. Sindri átti reyndar hugmyndina að þessu, við útfærðum þetta svo í sameiningu.

Enda þetta svo á þessum snillingi!