jump to navigation

Útskrift maí 21, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
trackback

Nú fer að líða að útskriftinni hjá mér, en hún verður á laugardaginn. Að sjálfsögðu verður veisla þar sem helstu VIP ættingjum og vinum er boðið. Ég hef fengið nokkrar spurningar um hvað mig langi í útskriftargjöf. Mér finnst alltaf voðalega vandræðalegt að reyna að svara svona spurningum því ég veist sjaldnast við mig langar í. Allt það sem mig virkilega langar til að eignast og tel mig hafa mikil not fyrir kostar morð fjár og ekki séns að ég biðji um slíkt að gjöf. Ég er því eins og lokuð bók má segja í þessum efnum, en helst langar mig þó í eitthvað sem gæti nýst mér í ljósmynduninni.

Ég er að reyna að finna mér hjólaleiðir sem eru í kringum 15-20 km en það er bara hægara sagt en gert. Leiðin í kringum byggðina í Garðabæ er ekki nema einhverjir tæpir 11 kílómetrar og kortavefurinn á Garðabæjarvefnum er ekki virkur eins og er, líkt og allur vefur Garðabæjar. Spurning hvort maður skelli ekki bara GPS úrinu á hendina og skoði hversu langt maður er kominn hverju sinni, hugsa svo bara út leiðir sem myndu ná upp í a.m.k. 15 kílómetra á meðan ég hjóla!

Hversu mikill grínsnillingur er Jón Gnarr?

Ummæli»

1. Olga Björt - maí 23, 2008

Kannski gætir þú tekið hjólið með þér í bílskottið, lagt honum efst í Elliðaárdalnum og hjólað þaðan og út á Gróttu og til baka, þar er bein leið og örugglega meira en 11 kílómetrar…eða það held ég…..

Já ég var einmitt að spyrja bróður þinn hvað þig langar í stúdentsgjöf og var því fegin að sjá þessa færslu. Það er aldrei að vita nema ég finni eitthvað sniðugt (he he…svona stríðnis HEHE).

Jón Gnarr er bestur.