jump to navigation

Mánuði síðar maí 20, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
trackback

Ég hef sjaldan látið það vera jafnlengi að uppfæra bæði myndasíðuna mína og bloggið í jafn langan

tíma og núna. Kannski er það prófunum að kenna, ég veit ekki en þeim er í það minnsta lokið. Versló búinn og klárast með útskrift núna á laugardaginn. Verð að segja að ég hef nú beðið eftir þessum degi í svolítinn tíma, hef verið með dágóðann skólaleiða síðastliðin tvö ár.

Stefnan er svo sett á Tyrkland í næstu viku í útskriftarferð, það verður eitthvað magnað dæmi. Æt

laði nú aldrei að fara í þessa blessuðu ferð, langaði samt alltaf að fara en sá fram á að vera það nálægt byrjunarliðinu í boltanum að ég eiginlega tímdi ekki að láta mig hverfa í viku á miðju tímabilinu. Svo gerðist það

fyrir tæpum mánuði að ég meiðist í leik á móti KFG, teygi á liðbandi í hné og má ekki byrja að hlaupa fyrr en í seinni hluta júní. Það þýddi bara eitt, ég er að fara til Tyrklands!

Litla frænka, sem ennþá á eftir að skíra en þó styttist í það, stækkar hratt og vel. Við vorum hins vegar ekki alveg nógu sátt með hvort annað á þessari mynd!

Ummæli»

1. Olga Björt - maí 23, 2008

Þið eruð æði á þessari mynd. :) :) Mér fannst þú sýna litla vargnum heilmikla þolinmæði. Það þýðir ekkert fyrir svona skvísur að vera eitthvað “picky” á ættingjana…haha