Vinna apríl 17, 2008
Posted by rognvaldur in Blogg.1 comment so far
Var að enda við að lesa bloggið hennar Olgu Bjartar um mismunandi vinnur sem hún hafði unnið og upprifjun á þeim og ég fór að hugsa um það sem ég hef verið í og langaði aðeins að skrá þetta niður og því ekki að deila þessu þá með ykkur:)
Bæjarvinnan: Bara spurning um að hafa e-ð fyrir stafni á sumrin og fá smotterí í staðinn. Maður lærði þó að sýna ábyrgð þarna gagnvart vinnunni ef maður var samviskusamur.
Vallarstarfsmaður: Líklega skemmtilegast vinnan sem ég hef verið í. Vann á Stjörnuvelli og fyrsta sumarið var teymið mjög gott sem var í kringum mig. Það bættist þó aðeins í unglingavinnulið sem var yngra en ég og þá breyttist andinn auk þess sem meistarinn Guðjón Baldivinsson fór á önnur mið en sá snillingur sá um að halda húmornum uppi.
Aðstoðarþjálfari í fótbolta: Hefur örugglega þjálfað mig hvað mest í mannlegum samskiptum af þeim vinnum sem ég hef unnið hingað til. Maður þurfti að eiga við krakkana, þjálfaði stráka allt frá 5 ára upp í 14 ára elst og einnig við foreldrana sem voru eins misjafnir og þeir voru margir. Gafst á endanum upp á þessu en aldrei að vita nema maður taki þetta aftur að sér seinna.
Aðföng: Entist nú ekki nema fimm daga í þessari vinnu sem átti að vera sumarvinnan mín. Keyrði um á lítilli græju og fyllti tvö bretti af vörum fyrir Hagkaup, Bónus og fleiri. Lagervinna sem átti engan veginn við mig. Þurfti auk þess að hjóla langar leiðir til að komast í vinnuna.
Kjöthöllin: Sá auglýsingu frá þeim meðan ég var í kaffi í Aðföngum. Hringdi og fékk viðtal og síðar vinnu. Var í þessu á fullu heilt sumar og svo nokkra daga í viku með skólanum. Mjög fín vinna um leið og maður komst yfir leiðindaskítinn kringum kjötvinnslu. Var að keyra út hamborgara á aðalburger staði höfuðborgarsvæðisins og stóð við kjötborðið og bullaði eitthvað um kjötið til að selja það án þess að blikka.
Bankavinna: Var í þessu síðasta sumar sem gjaldkeri og verð aftur í sumar. Mjög gott upp á þjónustulundina að gera og þolinmæði gagnvart öðru fólki. Lærði heilmikið um “protocols” og skrifstofustörf. Hafði ágætlega gaman af að þessu, að minnsta kosti nóg til að ég sótti aftur um.
Ljósmyndun: Búinn að vera að vinna fyrir Garðapóstinn í rúmt ár og nýlega bættist Kópavogspósturinn við í dæmið og hef gaman af þessu. Stefni á að leggja fjölmiðlun fyrir mig í framtíðinni.
Ég var að bæta við myndum á Flickrinu, endilega kíkið á það. Kemur meira í næstu viku þegar Viljinn kemur út og svo ennþá meir þegar V74 kemur út sem ég veit ekkert hvenær verður!