Kína mars 14, 2008
Posted by rognvaldur in Blogg.trackback
Það má segja að ég hafi stigið á kínverska grundu í morgun. Bekkurinn fór í heimsókn í kínverska sendiráðið í morgun, með alþjóðahagfræðikennaranum Sólmundi. Það var rosalega vel tekið á móti okkur og sendiherran heilsaði öllum með handabandi og kynnti sig. Ég byrjaði á því að meika ekki upp tröppurnar að sendiráðinu og var næstum floginn á hausinn en rétt náði að bjarga mér. Þegar inn var komið buðu Kínverjarnir okkur upp á morgunmat, samlokur með skinku og osti auk einhversskonar gufubakaðs deigs, sem ég höndlaði ekki að smakka á svona í morgunsárið. Þá voru ýmis konar drykkir í boði, einhver hnaus þykkur ávaxtasafi og svo kínverskir gosdrykkir. Mér fannst dósirnar skemmtilegar, það var alltaf mynd af einhverjum á þeim öllum. Tók tvær dósir með mér heim, annars vegar Sprite og hins vegar einhvern möndludrykk sem ég veit að sjálfsögðu ekki nafnið á þar sem allt er á mandarísku:)
Ummæli»
No comments yet — be the first.