jump to navigation

“Fíllinn hvarf….hann bara fokking hvarf!” mars 7, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
trackback

Jæja, þá kemur loks að því að maður setjist niður og skrifi eitthvað hérna. Síðustu vika hefur verið þokkaleg hvað varðar prógramm, maður hefur verið að skila hinum og þessum fyrirlestrum, mynda fyrir Verzlunarskólablaðið, mynda fyrir blöðin og síðan spila fótbolta villt og galið.

Mér hefur gengið nokkuð vel í boltanum að undanförnu, búinn að spila alla síðustu 5 leiki, þ.e. fulla leiki og bara staðið mig nokkuð vel að ég held. Það má reyndar alltaf gera betur og ég stefni á ekkert annað en að bæta minn leik. Það er líka miklu skemmtilegra þegar maður fær að spila nóg og af einhverri alvöru.

Ég myndaði ansi áhugaverðan einstakling fyrir Verslunarskólablaðið í síðustu viku og ég mun sýna ykkur þær myndir á Flickr-inu mínu og blogga jafnvel um viðtalið sem Steinar tók við hann meðan ég var þarna. Þessi aðili hafði ýmsar skemmtilegar pælingar og magnað sýn á lífið. Hann er af flestum talin e-ð skrýtinn í hausnum og kolruglaður, sem er svosem ekkert skrýtið miðað við það sem hann segir. Stundum fannst mér þó það sem hann sagði meika mjög mikið sens á meðan annað var gjörsamlega út úr kú.

Mig langar að enda þennan póst á myndbandi með Jeff Dunham, ég hef gjörsamlega ofkeyrt DVD diskana sem ég á með honum í tölvunni undanfarið. Hann er búktalari og einn sá færasti sem ég hef séð. Umfram allt þá er hann alveg rosalega fyndinn. Í þessu myndbandi talar persónan hans, Peanut, m.a. um það þegar það kom heill hópur af heyrnalausu fólki á sýningu hjá honum, með túlk! Glöggir átta sig á því að það er náttúrulega ekkert fyndið að fara að sjá búktalara ef þú heyrir ekkert. Það er eins og að fara með blint fólk á sjónhverfingasýningu og reyna að lýsa því sem gerist: “Fíllinn hvarf…..hann bara fokking hvarf!”

Þessi brandari byrjar rétt fyrir níundu mínútu í fyrra myndbandinu og heldur svo áfram í byrjuninni á því seinna. Mæli samt með því að þið horfið á allt saman, þetta er snilld!

Ummæli»

No comments yet — be the first.