jump to navigation

Breytingar í hringrás lífsins febrúar 19, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
trackback

Það er alveg magnað hvað maður stendur frammi fyrir miklum breytingum á næstunni. Maður eldist hraðar en maður getur talið og maður þarf að pæla í hlutum sem áður skiptu engu máli. Allt í einu þarf maður að fara að sýna miklu meiri ábyrgð. Hvað á t.d. að gera eftir stúdentinn? Fara og leika sér, gera eitthvað sem mann langar til að gera? Fara í háskólann og byrja það dæmi strax? Bíða með háskólann og leika sér eitthvað þangað til maður vill aftur í skólann? Flytja út í skóla eða vera hér heima? Flytja út á land í skóla eða vera heima?

Merkilegast finnst mér þó þær breytingar sem verða í lífi manns allt í kringum hann. Munstur þess fólk sem stendur næst þér breytist mikið á þessum fyrstu árum þrítugsaldursins. Margir af þínu nánustu vinum, systkinum eða ættingum eignast börn og skapa ný líf. Á sama tíma verður fólkið sem þú hélst að myndi alla tíð vera til staðar allt í einu ekki þar. Fólkið sem þú horfðir upp til þegar þú varst lítill með aðdáun eða væntumþykju. Líf þess endar skyndilega en á sama tíma verður til nýtt líf nálægt manni. Hringrás lífsins er svolítið magnað fyrirbæri þegar hugsað er út í allt það sem maður gengur í gegnum á leiðinni.

Nú er bara að taka þessum breytingum, sætta sig við orðinn hlut og halda áfram að horfa fram á veginn. Og ekki líta um öxl fyrr en við endalokin.

Ummæli»

1. rognvaldur - febrúar 20, 2008

Óóókei, ég lenti semsagt í einhverri ítalskri kommentakeðju!

2. Ingibjörg Fríða - febrúar 21, 2008

There is no way out my friend…

3. Fanney - febrúar 21, 2008

heyrðu flott blogg kallinn minn… og hvað er málið með þetta fólk?? piss off;)

4. rognvaldur - febrúar 21, 2008

Ég nennti þessu ekki lengur og eyddi þessu og tilkynnti sem ruslcomment!

5. popale - febrúar 27, 2008

“Un giorno l’Uomo del destino / trovandosi invitato ad un festino / gonfiò il petto meglio di un tacchino / e salutò il Poeta tra i presenti: “Al più grande di tutti io mi inchino”. / “è pur vero” rispose quello sull’attenti / “non è da tutti misurar due metri”.
Forse non conosci Trilussa è un poeta di Roma ma c’è un poeta simile anche in Islanda ?
Un asluto dalla terra del sole :)
A presto

P.S. Don’t worry this is only an italian bloggers-game.
This game consist to chose three blogs in the The most popular WordPress.com posts of Iceland and leave there a comment in italian.
Take care of yourself and have a nice day!
pOpale

6. Giorgia - febrúar 27, 2008

popale – you’re late, as game was declared over something like 4 days ago… ;)

7. popale - febrúar 27, 2008

giorgia, ach .. wasted hard work ;-)