Mér finnst rigningin góð! febrúar 16, 2008
Posted by rognvaldur in Blogg, Myndir.trackback
Rosalega er ég sáttur með rigninguna og hitann sem fylgir henni, ég fíla ekki snjóinn mjög vel, sérstaklega þegar hann ætlar að hanga svona lengi. Það er oft talað um að rigningin sé svo þunglyndisleg, fólk verður bara í verra skapi, en á veturna þá finnst mér eiginlega bara fínt að hafa rigningu frekar en snjó.
Þó það hafi hlýnað smávegis þá þýðir það ekki að maður geti bara hoppað út í peysu eða á bol. Ég varð því mjög ánægður þegar Helga Björg samþykkti að sitja fyrir hjá mér í útimyndatöku, á hlýrabol! Fórum meira að segja út í fjöru, svo ekki var nú skjólið mikið. Hún tók sannkallað ANTP á þetta og setti upp módelsvipinn, held henni hafi orðið á tímabili svo kalt að hún var hætt að finna fyrir því! Myndatakan var fyrir keppni á Flickrinu, í Garðarbæjar grúppunni. Þemað er “Svarthvítt Portrait” og ég sendi inn myndina sem þið sjáið hérna. Takk kærlega fyrir hjálpina Helga Björg!
Svo er fótboltinn búinn að vera á góðri siglingu hvað varðar æfingar og nú fara sífellt fleiri leikir að detta inn. Við spiluðum við Hött síðasta laugardag og unnum 3-2. Í dag spilum við svo við Grindavík kl. 16:45 í Kórnum í Kópavogi, það er mjöög gott að spila þar inni.
Læt þetta duga í bili, hérna er myndin sem ég ætla að nota í keppnina

Vá þetta er ótrúlega flott mynd, helga er mjög sæt á henni…:D
Mér finnst vinnslan flott. Það er einhver svona grunge fýlingur í gangi. Hvernig vinnsla er þetta?
Bara svarthvítt með hue/saturation, smá curves á augun og annar curves layer á alla myndina, svo dekkti ég hana aðeins með levels layer og að lokum bætti ég við vignetting í hornin. Ekkert alltof flókið:)
Takk fyrir það Þórdís:D