jump to navigation

Nýtt blogg febrúar 4, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Myndir, Youtube.
trackback

Jæja þá ætla ég að fara að blogga eitthvað aftur, ekki viss um hversu lengi ég endist í þetta skiptið. Það eru komin tæp tvö ár frá síðasta bloggi og ég ætlaði upphaflega að endurvekja gömlu blogspot síðuna, en ég fann þetta kerfi og þvílíkur munur! WordPress til sigurs!

Ég er með myndirnar mínar á Flickr síðu, www.flickr.com/roggi og þar getið þið séð flestar myndirnar mínar. Er að skjóta fyrir Garðapóstinn/Kópavogspóstinn í hlutastarfi og ég verð að segja að þó að sum verkefnin séu ómerkileg og hálfleiðinleg þá er ég alveg sáttur við þetta. Skilar mér allavega reynslu og ekki slæmt að hafa þetta á CV þegar ég ætla að reyna að komast eitthvað áfram í þessum bransa.

Þessi myndi skilaði mér 1.sæti í keppni í Garðarbæjargrúppunni á Flickr, þemað var vísun í nafn á hljómsveit eða í lag og ég valdi “Chemical Brothers”. Sindri átti reyndar hugmyndina að þessu, við útfærðum þetta svo í sameiningu.

Enda þetta svo á þessum snillingi!

Ummæli»

1. Andri Már - febrúar 4, 2008

Nú set ég bara kröfu á þig að þú skrifir eitthvað af viti, það þýðir ekkert að skrifa bara eina færslu í viku. Gó, gó, gó c”)