jump to navigation

Útskrift maí 21, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
1 comment so far

Nú fer að líða að útskriftinni hjá mér, en hún verður á laugardaginn. Að sjálfsögðu verður veisla þar sem helstu VIP ættingjum og vinum er boðið. Ég hef fengið nokkrar spurningar um hvað mig langi í útskriftargjöf. Mér finnst alltaf voðalega vandræðalegt að reyna að svara svona spurningum því ég veist sjaldnast við mig langar í. Allt það sem mig virkilega langar til að eignast og tel mig hafa mikil not fyrir kostar morð fjár og ekki séns að ég biðji um slíkt að gjöf. Ég er því eins og lokuð bók má segja í þessum efnum, en helst langar mig þó í eitthvað sem gæti nýst mér í ljósmynduninni.

Ég er að reyna að finna mér hjólaleiðir sem eru í kringum 15-20 km en það er bara hægara sagt en gert. Leiðin í kringum byggðina í Garðabæ er ekki nema einhverjir tæpir 11 kílómetrar og kortavefurinn á Garðabæjarvefnum er ekki virkur eins og er, líkt og allur vefur Garðabæjar. Spurning hvort maður skelli ekki bara GPS úrinu á hendina og skoði hversu langt maður er kominn hverju sinni, hugsa svo bara út leiðir sem myndu ná upp í a.m.k. 15 kílómetra á meðan ég hjóla!

Hversu mikill grínsnillingur er Jón Gnarr?

Mánuði síðar maí 20, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
1 comment so far

Ég hef sjaldan látið það vera jafnlengi að uppfæra bæði myndasíðuna mína og bloggið í jafn langan

tíma og núna. Kannski er það prófunum að kenna, ég veit ekki en þeim er í það minnsta lokið. Versló búinn og klárast með útskrift núna á laugardaginn. Verð að segja að ég hef nú beðið eftir þessum degi í svolítinn tíma, hef verið með dágóðann skólaleiða síðastliðin tvö ár.

Stefnan er svo sett á Tyrkland í næstu viku í útskriftarferð, það verður eitthvað magnað dæmi. Æt

laði nú aldrei að fara í þessa blessuðu ferð, langaði samt alltaf að fara en sá fram á að vera það nálægt byrjunarliðinu í boltanum að ég eiginlega tímdi ekki að láta mig hverfa í viku á miðju tímabilinu. Svo gerðist það

fyrir tæpum mánuði að ég meiðist í leik á móti KFG, teygi á liðbandi í hné og má ekki byrja að hlaupa fyrr en í seinni hluta júní. Það þýddi bara eitt, ég er að fara til Tyrklands!

Litla frænka, sem ennþá á eftir að skíra en þó styttist í það, stækkar hratt og vel. Við vorum hins vegar ekki alveg nógu sátt með hvort annað á þessari mynd!

Vinna apríl 17, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
1 comment so far

Var að enda við að lesa bloggið hennar Olgu Bjartar um mismunandi vinnur sem hún hafði unnið og upprifjun á þeim og ég fór að hugsa um það sem ég hef verið í og langaði aðeins að skrá þetta niður og því ekki að deila þessu þá með ykkur :)

Bæjarvinnan: Bara spurning um að hafa e-ð fyrir stafni á sumrin og fá smotterí í staðinn. Maður lærði þó að sýna ábyrgð þarna gagnvart vinnunni ef maður var samviskusamur.

Vallarstarfsmaður: Líklega skemmtilegast vinnan sem ég hef verið í. Vann á Stjörnuvelli og fyrsta sumarið var teymið mjög gott sem var í kringum mig. Það bættist þó aðeins í unglingavinnulið sem var yngra en ég og þá breyttist andinn auk þess sem meistarinn Guðjón Baldivinsson fór á önnur mið en sá snillingur sá um að halda húmornum uppi.

Aðstoðarþjálfari í fótbolta: Hefur örugglega þjálfað mig hvað mest í mannlegum samskiptum af þeim vinnum sem ég hef unnið hingað til. Maður þurfti að eiga við krakkana, þjálfaði stráka allt frá 5 ára upp í 14 ára elst og einnig við foreldrana sem voru eins misjafnir og þeir voru margir.  Gafst á endanum upp á þessu en aldrei að vita nema maður taki þetta aftur að sér seinna.

Aðföng: Entist nú ekki nema fimm daga í þessari vinnu sem átti að vera sumarvinnan mín. Keyrði um á lítilli græju og fyllti tvö bretti af vörum fyrir Hagkaup, Bónus og fleiri. Lagervinna sem átti engan veginn við mig. Þurfti auk þess að hjóla langar leiðir til að komast í vinnuna.

Kjöthöllin: Sá auglýsingu frá þeim meðan ég var í kaffi í Aðföngum. Hringdi og fékk viðtal og síðar vinnu. Var í þessu á fullu heilt sumar og svo nokkra daga í viku með skólanum. Mjög fín vinna um leið og maður komst yfir leiðindaskítinn kringum kjötvinnslu.  Var að keyra út hamborgara á aðalburger staði höfuðborgarsvæðisins og stóð við kjötborðið og bullaði eitthvað um kjötið til að selja það án þess að blikka.

Bankavinna: Var í þessu síðasta sumar sem gjaldkeri og verð aftur í sumar. Mjög gott upp á þjónustulundina að gera og þolinmæði gagnvart öðru fólki. Lærði heilmikið um “protocols” og skrifstofustörf. Hafði ágætlega gaman af að þessu, að minnsta kosti nóg til að ég sótti aftur um.

Ljósmyndun: Búinn að vera að vinna fyrir Garðapóstinn í rúmt ár og nýlega bættist Kópavogspósturinn við í dæmið og hef gaman af þessu. Stefni á að leggja fjölmiðlun fyrir mig í framtíðinni.

Ég var að bæta við myndum á Flickrinu, endilega kíkið á það. Kemur meira í næstu viku þegar Viljinn kemur út og svo ennþá meir þegar V74 kemur út sem ég veit ekkert hvenær verður!

Brettagaur í einn dag mars 25, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
add a comment

Mér finnst margt mun leiðinlegra en að fara á skíði. Páskarnir voru því vel nýttir í þá iðkun, en ég fór í fjallið alla daga frá föstudegi til mánudags. Reyndar var veðrið mjög misjafnt og færið líka, en hvað gerir maður ekki fyrir nokkra skemmtilega daga á skíðum, ekki fær maður mörg tækifæri til að sinna þessu sökum boltasparksins. Ég fór með Þórdísi og bróður hennar Gísla á laugardaginn var en þau eru bæði á brettum. Ég hef verið á skíðum síðan ég gat staðið í lappirnar og einungis tvisvar reynt að standa á snjóbretti, með slæmum árangri. Ég sagði þó við sjálfan mig á sunnudaginn, og reyndar við Þórdísi líka að nú skyldi ég prófa þetta aftur á mánudeginum og leigja mér bretti og skó. Ég ætlaði að fá hana til að leiðbeina mér en hún komst ekki þennan daginn svo ég varð bara að finna út úr þessu sjálfur, en hafði þó mér til samveru hann karl faðir minn. Ég náði að espa hann upp í að prófa þetta með mér á sunnudeginum og eftir að hann lofaði þessu gat hann ekki komið sér undan því á mánudeginum.

Þetta byrjaði fínt, við fórum í sitthvoru lagi upp með stólalyftunni enda engin traffík í lyftunni og við sáum ekki fram á að koma okkur báðir í einu úr lyftunni án vandræða. Ekki að það hafi ekki kostað svita og tár að koma sér einum og sér úr lyftunni! Við vildum heldur ekki stórslasa okkur í diskalyftunni. Þó tók það næsta við, að koma sér niður brekkuna. Langa, auðvelda leiðin varð fyrir valinu, en fyrir forvitna þá vorum við í Skálafelli. Það byrjaði ekki vel. Ég fór aðeins á undan og átti auðveldara með að standa en pabbi. Ég fékk þó vænan skelli þegar ég slengdist niður beint á rófubeinið eftir um 100 metra! Pabbi átti í stökustu vandræðum með að koma sér niður brekkuna, á troðnu leiðinni enda leitaði brettið alltaf til hliðar þar sem pabbi var ekki alveg að ná að standa rétt! Áfram komumst við þó og fljótlega nenntu Ingibjörg og mamma ekki að bíða lengur eftir okkur og fóru á undan. Ég sá þær ekkert aftur fyrr en í nestisstoppinu! Við náðum valdi á bremsustöðunni og ég gat meira að segja rennt mér nokkuð hratt niður “beinn” . Pabbi aftur á móti fór bara niður í bremsu og reyndi að átta sig á þessu. Hann hinsvegar datt frekar illa, en það var bara í eitt skipti og gerðist ekki aftur svona illa það sem eftir lifði dagsins.

Alls fórum við fjórar ferðir og pabbi var orðinn nokkuð góður í bremsunni og datt ekkert í síðustu ferðinni. Annað en ég get sagt. Ég var að bisast við að reyna að sviga sem kostaði þó nokkrar bylturnar. Ég náði þó að sviga án vandræða svona 70 metra kafla, en meira varð það ekki!

Ég get sagt það með nokkurri vissu að ég ætla að halda mig við skíðin eftir þetta!

Ég og pabbi

Ég

Kvikmyndaraddirnar mars 19, 2008

Posted by rognvaldur in Youtube.
add a comment

Lengst til hægri er gæjinn sem sér um 90% af Hollywood trailerum, gæjinn í miðjunni vinnur við þetta líka og svo er Pablo Francisco sem hefur gert óspart grín að hinum tveim.

Jimmy Kimmel mars 16, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
add a comment

Jimmy Kimmel er spallþjáttastjórnandi í USA og ég verð reyndar að byrja á því að viðurkenna að ég hef aldrei séð þátt með honum. Ég rakst hinsvegar á myndband sem er tekið úr þættinum og fannst það frekar fyndið og fann svo annað sem tengist því, einskonar svar við því fyrra. Forsaga málsins er sú að Kimmel hefur alltaf verið leiðinlegur við Matt Damon af einhverjum ástæðum og kveður áhorfendur alltaf með því að segja “bið Matt Damon afsökunar, en við höfðum því miður engann tíma fyrir hann”. Matt kom svo í þáttinn til hans, en um leið og hann settist sagði Kimmel að þátturinn væri búinn og enginn tími væri eftir. Matt snappaði á hann, veit ekki hvort það var í alvörunni, en hann lét Kimmel vel heyra það.

Matt talaði því við Söruh Silverman, kærustu Kimmel, og bað hana um hjálp við að hefna sín á Kimmel. Það endaði með þessu videó-i:

Þetta er svo stjörnum prýtt svar Kimmel:

Kína mars 14, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
add a comment

Það má segja að ég hafi stigið á kínverska grundu í morgun. Bekkurinn fór í heimsókn í kínverska sendiráðið í morgun, með alþjóðahagfræðikennaranum Sólmundi. Það var rosalega vel tekið á móti okkur og sendiherran heilsaði öllum með handabandi og kynnti sig. Ég byrjaði á því að meika ekki upp tröppurnar að sendiráðinu og var næstum floginn á hausinn en rétt náði að bjarga mér. Þegar inn var komið buðu Kínverjarnir okkur upp á morgunmat, samlokur með skinku og osti auk einhversskonar gufubakaðs deigs, sem ég höndlaði ekki að smakka á svona í morgunsárið. Þá voru ýmis konar drykkir í boði, einhver hnaus þykkur ávaxtasafi og svo kínverskir gosdrykkir. Mér fannst dósirnar skemmtilegar, það var alltaf mynd af einhverjum á þeim öllum. Tók tvær dósir með mér heim, annars vegar Sprite og hins vegar einhvern möndludrykk sem ég veit að sjálfsögðu ekki nafnið á þar sem allt er á mandarísku :)

Sprite á Knversku

Módelið

Möndludrykkurinn

Föðurbróðir! mars 13, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
4 comments

Til hamingju Andri Már og Olga Björt með nýjustu viðbótina í fjölskylduna! Ég fékk, ásamt Ingibjörgu litlu systur, að kíkja til þeirra á fæðingardeildina í gær. Mikið rosalega eru þessi kríli lítil!

Ég með bróðurdóttir mna

“Fíllinn hvarf….hann bara fokking hvarf!” mars 7, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg, Youtube.
add a comment

Jæja, þá kemur loks að því að maður setjist niður og skrifi eitthvað hérna. Síðustu vika hefur verið þokkaleg hvað varðar prógramm, maður hefur verið að skila hinum og þessum fyrirlestrum, mynda fyrir Verzlunarskólablaðið, mynda fyrir blöðin og síðan spila fótbolta villt og galið.

Mér hefur gengið nokkuð vel í boltanum að undanförnu, búinn að spila alla síðustu 5 leiki, þ.e. fulla leiki og bara staðið mig nokkuð vel að ég held. Það má reyndar alltaf gera betur og ég stefni á ekkert annað en að bæta minn leik. Það er líka miklu skemmtilegra þegar maður fær að spila nóg og af einhverri alvöru.

Ég myndaði ansi áhugaverðan einstakling fyrir Verslunarskólablaðið í síðustu viku og ég mun sýna ykkur þær myndir á Flickr-inu mínu og blogga jafnvel um viðtalið sem Steinar tók við hann meðan ég var þarna. Þessi aðili hafði ýmsar skemmtilegar pælingar og magnað sýn á lífið. Hann er af flestum talin e-ð skrýtinn í hausnum og kolruglaður, sem er svosem ekkert skrýtið miðað við það sem hann segir. Stundum fannst mér þó það sem hann sagði meika mjög mikið sens á meðan annað var gjörsamlega út úr kú.

Mig langar að enda þennan póst á myndbandi með Jeff Dunham, ég hef gjörsamlega ofkeyrt DVD diskana sem ég á með honum í tölvunni undanfarið. Hann er búktalari og einn sá færasti sem ég hef séð. Umfram allt þá er hann alveg rosalega fyndinn. Í þessu myndbandi talar persónan hans, Peanut, m.a. um það þegar það kom heill hópur af heyrnalausu fólki á sýningu hjá honum, með túlk! Glöggir átta sig á því að það er náttúrulega ekkert fyndið að fara að sjá búktalara ef þú heyrir ekkert. Það er eins og að fara með blint fólk á sjónhverfingasýningu og reyna að lýsa því sem gerist: “Fíllinn hvarf…..hann bara fokking hvarf!”

Þessi brandari byrjar rétt fyrir níundu mínútu í fyrra myndbandinu og heldur svo áfram í byrjuninni á því seinna. Mæli samt með því að þið horfið á allt saman, þetta er snilld!

Italians! febrúar 21, 2008

Posted by rognvaldur in Blogg.
9 comments

Please stop commenting on my site, unless it is something about the actual context of my blogs. I don’t think any of you who have been commenting understand a single word in my blogs. Any comments in Italian will be deleted or flagged as SPAM.

Thank you!